Vista Gadget

Vísir.is býður nú uppá nýja þjónustu fyrir Windows Vista, “VISTA gadget” sem gerir notendum kleyft að fá greiðan aðgang að fjöbreyttri þjónustu og upplýsingum á netinu. Með " VISTA gadget" getur þú m.a horft á fréttir og ýmsa sjónvarpsþætti, hlustað á útvarpið og fengið veðurspána beint frá veðurstofunni í tölvuna þína án þess að nota internetvafra.

Uppsetning

Til að nýta þér þjónustuna “VISTA gadget” sem í boði er þarftu aðeins að smella á „Sækja“ takkann til að hlaða niður þjónustunni. Þegar þú ert búinn að sækja gadget skrána tvísmellirðu á hana, ýtir á „Install“, að því loknu á þjónustan vera uppsett og mun verða sýnileg á tölvuskjánum.

Þjónustur sem eru í boði

Vísir.is fréttir

Útgáfa 1.2 - 23.júlí.2007 Sækja
Birtir nýjustu fréttir á vísir.is strax og þær koma. Leyfir þér að velja þá flokka sem þú vilt fylgjast með.
 

Vísir.is vefsjónvarp

Útgáfa 1.2 - 7.júní.2007 Sækja
Gefur þér aðgang að ýmsu sjónvarpsefni sem streymt er af netinu.
 

Vísir.is vefútvarp

Útgáfa 1.0 - 7.júní.2007 Sækja
Leyfir þér að hlusta á ýmsar útvarpsstöðvar í beinni. Hægt er að hlusta á Bylgjuna, Léttbylgjuna, Nýbylgjuna, Gullbylgjuna, Fm957 og X-ið.
 

Vísir.is vefblöð

Útgáfa 1.0 - 7.júní.2007 Sækja
Gefur þér aðgang að nýjasta eintaki Fréttablaðsins á Vísir.is. Einnig er hægt að skoða eldri eintök.
 

Vísir.is veður

Útgáfa 1.3 - 23.júlí.2007 Sækja
Birtir veðrið í dag. Leyfir þér að velja stað ásamt því að birta spánna fyrir næstu daga.
 

Gras.is fréttir

Útgáfa 1.2 - 23.júlí.2007 Sækja
Birtir nýjustu fréttir af gras.is strax og þær koma. Þú velur hvaða deildum þú fylgist með.

Spurningar og svör

Hvað eru VISTA Gadget?

VISTA Gadget eru þjónustuforrit fyrir Windows Vista sem hvílir á skjáborðinu (sidebar) og veitir þér á einfaldan hátt aðgang að ýmsum gagnlegum upplýsingum. Mikið af þessum upplýsingum geta einfaldað daglega vinnu við tölvuna, t.d. klukka, gjaldmiðlaskiptar, reiknivélar o.s.frv.

Hvað þarf til að setja upp “Gadget” á minni tölvu?

Til að setja upp þjónustuna “VISTA gadget” þarftu að hafa nýja stýrikerfið frá Microsoft, Windows Vista uppsett á tölvunni þinni, einnig þarftu að vera tengdur internetinu fyrir flestar þessar þjónustur.

Ég aftengdi þjónustuna, hvernig get ég fundið gadgetið aftur?

Ef þjónustan er opin, en á bakvið einhverja glugga, geturu haldið “Start” hnappnum inni og smellt á bilslánna (Start+Space) til að fá gadgetin fram. Ef þú ert með of mörg gadget á gadgetsvæðinu fara þau á nýja blaðsíðu, þá geturðu notað örvarnar efst uppi til að flétta milli blaðsíðna.

Ef þjónustu hefur verið lokað þarftu að fara inní gadget browserinn, það er gert með því að smella á plúsinn efst á gadget svæðinu. Þar inni sérðu lista af öllum þeim þjónustum “gadgetum” sem eru í boði og þú hefur sett upp, þar getur þú opnað fyrir þjónustuna aftur með því að tvísmella á það sem þú villt nota eða draga það inn á gadget svæðið.

Hvernig fer ég að því að eyða þjónustuforritinu úr tölvunni minni

Þú smellir á plúsinn efst á gadgetsvæðinu velur þjónustuna sem þú vilt eyða og ýtir á "delete" takkann á lyklaborðinu.

Fleiri spurningar og svör