Fréttir

Hefur þú áhuga á tónlist, kvikmyndum, bókum og tölvuleikjum?
Ertu metnaðarfullur forritari sem vilt takast á við skemmtilega hluti?

Ef svarið er já, þá langar okkur að hitta þig!

D3 er leiðandi fyrirtæki í dreifingu á stafrænu efni og rekur meðal annars vefsvæðið Tónlist.is. Við óskum eftir forriturum til að takast á við þróun og rekstur á vef- og snjallsímalausnum.

Hæfniskröfur: Háskólamenntun í tölvunarfræði, sambærilegt nám eða reynsla. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi þekkingu á Microsoft .NET C# og þekkingu á gagnagrunnsforritun (T-SQL). Reynsla af svipuðum forritunarmálum kemur til greina.
Aðrir góðir kostir: Þekking á HTML, CSS og XML, þekking á hönnun og útfærslu á vefþjónustum, þekking og reynsla af hönnun og útfærslu á lagskiptri högun.

Sendu okkur línu á atvinna@d3.is

 
D3. · Skeifan 17 · 108 Reykjavík · sími 591 5200