| Tónlist ................................................................................................. |
|
|
|
|
|
||||
|
|
|
|
|
||||
|
|
|
||||||
|
|
|
|
|||||
Allir sem hafa staðið í verslunarrekstri þekkja það eilífðarvandamál sem fylgir því að velja réttu tónlistina fyrir verslunina. Verslunareigendur eyða miklum fjármunum í það sem viðskiptavinurinn sér en gleyma oft að hugsa um það sem hann heyrir. Rétt tónlist stuðlar að góðri upplifun viðskiptavinarins og eykur líkur á kaupum.En hvað er "rétt" tónlist? Þar kemur BackBeat til sögunnar. BackBeat vinnur með versluninni og býr til klæðskerasniðinn lagalista sem hentar hverju sinni. Tekið er mið af markhópnum, vörunni sem verslunin selur, árstíma og þeirri upplifun sem verslunin vill ná fram. Hvert lag í lagalistanum er úthugsað og þar skiptir máli tónlistarstíll, kraftur, takthraði, texti lags og fleira. Útkoman er gott andrúmsloft með viðeigandi og söluhvetjandi tónlist. Nokkrum sinnum í mánuði er gerð uppfærsla á lagalistanum og því helst hann ávallt ferskur. Í ört stækkandi gagnagrunni BackBeat eru yfir 60.000 lög og ný lög bætast við í hverri viku. Góð blanda er af íslensku og erlendu efni. Einn af fjölmörgum kostum við þetta fyrirkomulag er að þarna er komin þægileg leið fyrir auglýsingar. Hægt er að beina athygli viðskiptavinarins, með mjög auðveldum hætti, að ákveðnum tilboðum, vörum eða atburðum. Rannsóknir sýna að slíkar auglýsingar eru mjög áhrifaríkar og skila árangri strax. Með stuttum fyrirvara getur BackBeat tekið upp auglýsingu og sett hana í spilunarlistann. Í dag eru margar verslanir að spila útvarpstöðvar og þar er oft að finna auglýsingar frá samkeppnisaðilum. Með fyrirkomulagi BackBeat má segja að til sé orðin "einka" útvarpstöð sem spilar aðeins auglýsingar sem þú vilt að hún spili! Meðal þeirra fyrirtækja sem nýta sér þjónustu BackBeat eru Skífan, 10-11, BT, Og Vodafone, ESSO og NEXT. <<< |