Tónlist
.................................................................................................

Vefsvæðið Tónlist.is er í eigu D3 Miðla ehf. og upplýsingar um hvernig ná megi til okkar er að finna hér að neðan.

D3 Miðlar ehf. er með samninga við helstu útgefendur tónlistar, fjölda listamanna og fjölda hagsmunaaðila tónlistargeirans um víða veröld. Með samningi við Samtón, regnhlífarsamtök tónlistarhreyfingarinnar er unnið markvisst að rafrænni skráningu íslenskrar tónlistar, allar götur frá 1910, í öllum tónlistarstefnum. D3 Miðlar ehf. nýtur stuðnings höfunda, flytjenda og útgefenda enda er yfirlýst markmið fyrirtækisins að tryggja rétthöfum og listamönnum tekjur af þeirri tónlist sem dreift er á Internetinu.

Markmið D3 Miðla ehf. er að vera helsti dreifingar og smásöluaðili íslenskrar tónlistar á Internetinu og nálgast má yfir 50.000 íslensk hljóðrit á vefsvæðinu Tónlist.is. Við kappkostum að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu sem ekki aðeins byggist á stafrænni tónlist heldur einnig tónlistartengdum fréttum, upplýsingum, myndböndum og tónleikum á netinu svo fátt eitt sé nefnt. Við vinnum markvisst að því að bæta við tónlist og nýrri þjónustu og leggjum áherslu á að koma nýjum listamönnum á framfæri.

<<<