Leikir
.................................................................................................


D3 hefur nú opnað tölvuleikjasíðuna Leikur.is þar sem hægt er að sækja prufuútgáfur af leikjum og kaupa eintak af leikjum fyrir sanngjarna upphæð. Á vefsíðunni er mikið úrval leikja, allt frá stórskemmtilegum þrautaleikjum fyrir alla fjölskylduna til hasar og herkænskuleikja fyrir lengra komna.

D3 er með samninga við fjölda leikjaframleiðenda ásamt samningi við hugbúnaðarfyrirtækið Softwrap varðandi tækni sem gerir D3 kleift að vernda leikina með sérhönnuðu DRM kerfi. Þessi tækni gerir D3 kleift að dreifa leikjunum eftir ýmsum leiðum, s.s. CD, FTP , HTTP , tölvupóst og P2P hugbúnað.

Ef þú ert með leiki sem þú vilt koma í dreifingu eða einhverjar spurningar um þjónustuna geturðu haft samband við leikir@d3.is