Farsímalausnir
.................................................................................................
D3 Mobile rekur sitt eigið virðisaukandi þjónustukerfi. Kerfið heldur utan um allar farsímaþjónustur D3 Mobile sem eru sífellt í þróun og gera kerfið enn öflugra. Kerfið sem D3 Mobile notar í dag hefur verið í stanslausri þróun í nokkur ár og er því búið að sanna sig sem bakendi fyrir allskyns þjónustur og sú reynsla er dýrmæt nú þegar kerfið hefur verið tekið í notkun erlendis. Sem dæmi um þjónustur má nefna, "Instant win" leiki, spurningaleiki, hraðaspurningaleiki, krossgátur, hringitóna, skjáhvílur, myndir, java leiki og gagnvirkar sjónvarpsþjónustur fyrir farsíma. Viðskiptavinir geta skoðað nákvæma tölfræði á sínum þjónustum og þannig fylgst með gengi þjónustna hverju sinni í rauntíma sem er dýrmætt markaðstól.