|
Tónlist.is heldur áfram að uppfæra þjónustu sína, nú höfum við sett í loftið þjónustu (app) fyrir Android síma. Þeir sem eru í áskrift á Tónlist.is geta streymt tónlist hvar og hvenær sem er í gegnum Android símtæki. Áskrifendur hafa nú aðgang að milljónum laga, bæði íslenskum sem og erlendum lögum í gegnum Android farsíma sinn.
Til að sækja sér þjónustuna er leitað að tonlist.is í Android Market. Svo er einfaldlega smellt á install. Einnig er hægt að nota svokallað Barcode Scanner forrit í símtækinu til að skanna strikamerki Tónlist.is (sem sýnt er hér að neðan). Þegar forritið hefur verið sett upp er hægt að skrá sig inn með sama notendanafni og lykilorði og á vefnum. Áskrifendur geta þannig hlustað á alla lagalista sem þeir hafa búið til á vefnum, skoðað vinsælustu lögin, séð hvað er nýtt eða einfaldlega leitað að því sem þeir vilja hlusta á.

Í júní 2010 setti Tónlist.is í loftið fyrstu þjónustuna (app) fyrir iPad sem er sérsniðin fyrir íslenskan markað. Þjónustan byggir á því að notendur Tónlist.is geta nú nýtt áskrift sína í gegnum iPad, iPod Touch og iPhone. Viðbrögðin stóðu ekki á sér og hafa á annað þúsund manns sótt app. Er það trú okkar hjá Tónlist.is að Android app mun ekki verða síður vinsælt hjá okkar áskrifendum enda flestir nýjir farsímar sem keyra á Android stýrikerfinu.
Strikamerki fyrir Barcode Scanner
|