Tónlist.is valið forrit ársins á Netið Expo
...........................................................................................

Tónlist.is var valið forrit ársins á netsýningunni Netið Expo sem fram fór helgina 11.-13. mars í Vetrargarðinum Smáralind. Verðlaunin koma í kjölfar viðburðaríks árs hjá Tónlist.is, þar sem forrit fyrir iOS stýrikerfi Apple og Android stýrikerfi Google voru sett í loftið við miklar vinsældir.

iPad, iPod Touch, iPhone og Android
Í júní síðastliðnum setti Tónlist.is í loftið fyrsta forritið (app) fyrir iPad sem var sérsniðið fyrir íslenskan markað. Áskrifendur hjá Tónlist.is gátu streymt tónlist hvar og hvenær sem er í gegnum þessa glænýju spjaldtölvu frá Apple. Vinsældir hennar virðast ekkert fara minnkandi, því nú þegar eru yfir 200 manns komnir á biðlista eftir nýju útgáfu spjaldtölvunnar (iPad 2) hjá epli.is. Í fyrstu útgáfu af tónlist.is forritinu var aðeins hægt að hlusta á íslenska tónlist en í núverandi útgáfu er einnig hægt að streyma allri erlendri tónlist í gegnum forritið. Í lok árs 2010 kom svo útgáfa af forritinu fyrir hið ört vaxandi farsímastýrikerfi frá Google Android. Áskrifendur hafa aðgang að miljónum laga í iPad, iPod Touch, iPhone og Android

Fyrir iOS er hægt er að sækja forritið í gegnum iTunes:



Nokkrar leiðir eru til þess að sækja sér Android forritið...

1. Smella hér og framkvæma Install.
2. Leita að tonlist.is í Android Market í viðkomandi símtæki og smella á install.
3. Einnig er hægt að nota svokallað Barcode Scanner forrit í símtækinu til að skanna strikamerki Tónlist.is (sem sýnt er hér að neðan). Þegar forritið hefur verið sett upp er hægt að skrá sig inn með sama notendanafni og lykilorði og á vefnum. Áskrifendur geta þannig hlustað á alla lagalista sem þeir hafa búið til á vefnum, skoðað vinsælustu lögin, séð hvað er nýtt eða einfaldlega leitað að því sem þeir vilja hlusta á.




Skannaðu strikamerkið með Barcode Scanner .

Nánar um þjónustuna fyrir Android síma

Nánar um app fyrir iPhone, iPad og Ipod Touch