Yfirlýsing frá STEF
...........................................................................................

Í tilefni af umfjöllun í fjölmiðlum síðustu daga um tónlistarvefinn „tonlist.is“ og greiðslum fyrir not á tónlist á honum vill STEF taka fram eftirfarandi:

1. Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF) og samnorrænu höfundaréttarsamtökin Nordisk Copyright Bureau (NCB) annast hagsmunagæslu fyrir íslenska sem erlenda tónhöfunda hér á landi, þ. á m. gagnvart umræddum tónlistarvef. Þessi samtök hafa hins vegar ekki með höndum réttindagæslu fyrir flytjendur, þ.e. hljóðfæraleikara og söngvara, eða hljómplötuútgefendur, heldur er það Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda (SFH).

2. Í gildi er samningur milli STEFs og NCB annars vegar og fyrirtækisins D3 hins vegar, þar sem fyrirtækinu er veitt heimild til að gera tónlist aðgengilega fyrir notendur á vefnum „tonlist.is“ gegn ákveðinni greiðslu. Þessi samningur hefur verið í gildi frá árinu 2005 og er að öllu leyti sama efnis og sambærilegir samningar sem gerðir hafa verið á öðrum Norðurlöndum milli höfundaréttarsamtaka og þeirra aðila er selja aðgang að tónlist á netinu.

3. D3 hefur staðið skil til STEFs/NCB á umsömdum höfundaréttargjöldum í samræmi við fyrrgreindan samning. Samkvæmt samkomulagi STEFs og systursamtaka þess á öðrum Norðurlöndum er það verkefni NCB að úthluta höfundum og öðrum rétthöfum greiðslum fyrir þessi tónlistarnot. Vegna þess að höfundagjöld fyrir þessi not eru hvarvetna í heiminum tiltölulega lág í samanburði við önnur höfundagjöld, t.d. af sölu tónlistar á hljómplötum og hljómdiskum, eru það því miður ekki háar fjárhæðir sem hver höfundur fær í sinn hlut.

Virðingarfyllst,
Eiríkur Tómasson,
framkvæmdastjóri STEFs