|
Nú geta allir bloggað með farsímanum á BlogCentral.is. Aðilar sem eru með bloggsvæði sitt á BlogCentral.is geta sent inn myndir og texta um leið og andinn kemur yfir bloggarann, hvar sem hann er í heiminum.
Þessi þjónusta er sett upp svo menn geti haldið t.d. sínu bloggi áfram meðan þeir fara í frí frá tölvunni eða hreinlega komast ekki í tölvuna þar sem ekki er netsamband.
BlogCentral.is er stærsta bloggsvæði landsins og margir af bestu bloggurum
á Íslandi blogga þar daglega. Því er ljóst að fjölda margir munu nýta
sér þessa viðbót á vefnum.
Auðvelt er fyrir hópa að blogga saman á einni síðu og geta þá allir skráð inn símanúmerið sitt og sent blogg úr sínum síma. Þetta hefur verið algengt meðal vinahópa, saumaklúbba, skólafélaga og ferðaklúbba svo dæmi séu tekin.
Til að byrja að blogga, þarf notandinn að fara í vefstjórn og stillingar
á BlogCentral.is,
skrá þar inn símanúmerið sitt og um leið er hægt að blogga með símanum.
Þjónustan er gjaldfrjáls hjá BlogCentral.is en greitt er venjulegt gjald
fyrir hvert MMS skilaboð sem sent er, samkvæmt gjaldskrá símafyrirtækjanna.
|