D3 og Háskólinn í Reykjavík í samstarf
...........................................................................................

Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík (HR) og D3, sem rekur tónlistarvefinn Tónlist.is, hafa gert með sér samstarfssamning um rannsóknarverkefni á sviði flokkunar á lögum eftir innihaldi þeirra.

HR hefur á undanförnum árum stundað rannsóknir á hraðvirkri og skalanlegri leit í margmiðlunargagnagrunnum, svo sem myndagrunnum, myndbandagrunnum, og núna tónlistargrunnum. Rannsóknarverkefnið snýst um að beita þessum leitaraðferðum við flokkun á tónlist í efnisflokka (e. genres), sem síðan má nota við leit í tónlistargrunnunum. Verkefnið, sem styrkt hefur verið af Þróunarsjóði HR, verður unnið af Hauki Pálmasyni, meistaranema í tölvunarfræði, undir umsjón Dr. Björns Þórs Jónssonar, dósents við Tölvunarfræðideild HR. Framlag D3 er einkum að veita aðgang að öllu íslensku efni vefsins tonlist.is til greiningar og flokkunar.