|
Netleitarfyrirtækið Google greindi frá því í dag að það hafi ráðið Vinton Cerf til starfa. Cerf bjó til TCP/IP samskiptareglur fyrir tölvur og er hann oft nefndur sem einn af feðrum Netsins. Cerf mun vinna með Google að þróun nýrra tæknilausna fyrir Netið.
Vinton Cerf er 62 ára. Hann mun starfa áfram fyrir Icann-samtökin (Internet Corporation for Assigned Names and Numbers), sem hafa yfirumsjón með lénum á Netinu.
„Vint Cert er einn af tæknilegum leiðtogum vorra tíma,“ sagði Eric Schmidt, forstjóri Google í kjölfar þess að tilkynnt var um ráðninguna. „Tæknileg sýn hans hjálpaði til við að skapa iðnað sem hefur breytt lífi okkar. Við hjá Google erum stoltir að fá hann til liðs við okkur,“ bætti hann við.
Vinton Cerf greindi frá því í dag að hann líti á Google sem mikilvægan lið í þróun Netsins. Hafi leitarvél fyrirtækisins orðið til þess að notendur víða um heim geti leitað sér upplýsinga á einfaldan hátt. „Við erum samt enn í fyrstu lotu,“ sagði Cerf og átti þar við að Netið væri rétt að slíta barnsskónum. „Þessi miðill mun ná meiri útbreiðslu en sjónvarp, útvarp og símar og mun á endanum ná langt út í geim. Google hefur ætíð haft trú á því að gera hlutina með öðrum hætti en aðrir og ég tel að það veiti okkur þá stöðu að geta látið villtustu hugmyndir okkar um Netið verða að veruleika,“ sagði hann.
mbl.is
|