|
Þann
25. apríl árið 2009 mun maður að nafni Greg fá tölvupóst. Tölvupósturinn
mun minna Greg á að hann er sinn besti vinur og versti óvinur, að hann
var einu sinni með konu sem heitir Michelle og hann ætlar að útskrifast
í tölvuvísindum. "En þó það sem skiptir mestu máli" segir í póstinum,
"ertu klæddur í kvenmannsföt?"
Tölvpósturinn var sendur af Greg sjálfum í gegnum vefsíðu sem heitir FutureMe.org.
Vefsíðan er ein af mörgum sem gefur fólki tækifæri á að senda sjálfum sér og öðrum tölvupóst inn í framtíðina. Þær eru svar tækninnar við svokölluðu tímahylkjum, þar sem fólk skiptist á forvitni, ábyrgðarskyldu og nostalgíu.
"Skilaboð inn í framtíðina er eitthvað sem fólk hefur alltaf sóst eftir" segir Paul Saffo, framkvæmdastjóri Institude for the Future. "Að sumu leiti er þetta staðhæfing af bjartsýni".
|