|
Gras.is hefur opnað nýjan frétta- og upplýsingavef fyrir knattspyrnuáhugamenn.
Vefurinn hefur verið endurhannaður frá grunni þó stuðst sé við þann grunn
sem Gras.is hafði.
Gras.is er elsti fótboltavefur landsins en hefur nú verið endurbættur
að miklu leyti. Sem dæmi um nýja þjónustu má nefna stafræn fréttabréf
sem einstaklingar geta fengið send án kostnaðar með tölvupósti, Boltavakt,
Draumadeild í samstarfi við Vísi.is og tenglasvæði þar sem notendur vefsins
geta sett inn sínar eigin fréttir. Má því má segja að Gras.is sé
miðstöð fótboltaáhugamanna þar sem menn geta miðlað fréttum sín á milli
og lesið skrif íþróttafréttamanna um fótbolta.
Gras.is er í eigu D3 sem reka marga af stærstu vefjum landsins t.d. Vísir.is, Blog.Central.is og Tónlist.is. D3 kynnir því með stolti þennan nýja vef sem eykur þjónustu við fótboltaáhugamenn á Íslandi til muna. Það er takmark Gras.is að vera vinsælasti fótboltavefur landsins og er þetta aðeins fyrsta skrefið að því markmiði.
Á næstu mánuðum munu Gras.is kynna en enn öflugri þjónustu við notendur á Gras.is
Kynntu þér málið á www.gras.is
|