|
Nú geta GSM notendur hjá Og Vodafone fengið fréttir frá fótboltavefnum Gras.is beint í farsímann. Hægt er að skoða knattspyrnufréttir frá Englandi, Þýskalandi, Spáni, Meistaradeild Evrópu og einnig frá íslensku knattspyrnunni.
Gras.is er einn af stærstu fótboltavefjum landsins. Vefurinn er uppfærður oft á dag og veitir notendum þannig aðgang að nýjustu fréttum úr heimi knattspyrnunnar um leið og þær koma á vefinn.
Fréttir frá Gras.is er að finna í Vodafone live! þjónustunni hjá Og Vodafone. Í Vodafone live! er hægt að sækja ýmiss konar þjónustu, t.d. fréttir, veður, hringitóna, leiki og mikið magn íþróttafrétta.
Gras.is er í eigu D3 sem reka marga af stærstu vefjum landsins t.d. Vísir.is, Tónlist.is og Blog.Central.is. D3 og Og Vodafone vinna náið saman með efni í farsíma og eru fréttir frá Gras.is í GSM síma hjá Og Vodafone ein af mörgum nýjungum sem eru væntanlegar úr samstarfinu.
Nánari upplýsingar á www.gras.is
eða á www.ogvodafone.is
|