Sala á tónlist í stafrænu formi þrefaldaðist á fyrsta helmingi ársins 2005 miðað við sama tímbil 2004.
International Federation of the Phonographic Industry (IFPI) áætluðu að 6% af plötusölu væru á stafrænu formi, 450 milljóna punda virði. “Sprengingin sem orðið hefur í sölu á tónlist á netinu heldur áfram og vex hratt sem er mjög spennandi fyrir tónlistariðnaðinn” sagði talsmaður IFPI. Hinsvegar hefur sala á geisladiskum dregist saman um 6.3%.
Í millitíðinni sagði IFPI að bylgjan sem hefur átt sér stað í sölu á tónlist á netinu sé mikil aukning á breiðbandsvæðingu, þriðju kynslóða farsímumog ferðaspilurum eins og Ipod.
Einnig hefur sala á tónlist á netinu dregið úr sölu á smáskífum út um allan heim sem heyra nú nánast sögunni til.
Stjórnarformaður og forstjóri IFPI, John Kennedy, sagði að æ fleiri nýttu kosti þess að sækja tónlist á netinu á löglegan máta í gegnum tölvuna eða farsímann. Einnig bætti hann við að þær leiðir sem farnar voru til að stoppa sjóræningjastarfsemi á netinu væru að virka.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu IFPI... www.ifpi.org
|