D3 opnar 2 nýjar vefsíður
...........................................................................................

Nýverið opnaði D3 tvær nýjar vefsíður.

Annars vegar er um að ræða www.cod.is og hins vegar www.sena.is. D3 sá um alla hönnun og forritun á vefjunum. Cod.is er heimasíða útgáfufyrirtækisins Cod Music en þar er að finna upplýsingar um flytjendur sem eru á mála hjá útgáfunni. Í raun er hér um hefðbundna útgáfu að ræða nema að tónlistin er aðeins gefin út sem niðurhal á Netinu og í farsíma til að byrja með. Ef sýnt þykir að að ákveðnir flytjendur hafi gott efni fram að færa sem líklegt er til að ná hylli verður farið í útgáfu á geisladiskum í framhaldinu.

Sena fékk D3 til útbúa fyrir sig vefsvæði þar sem finna má upplýsingar um fyrirækið en Sena, áður afþreyingarsvið Skífunnar, er stærsta fyrirtæki landsins á sínu sviði. Sena dreifir til almennings efni frá mörgum stærstu framleiðendum heims á sviði tónlistar, kvikmynda og tölvuleikja gegnum verslanir, myndbandaleigur, kvikmyndahús, sjónvarp og fleiri efnisveitur.