Steve Jobs, forstjóri Apple, sagðist í dag vera á móti hugmyndum hljómplötuútgefenda um að hækka verð á tónlist sem sótt er í gegnum netið. Hann varaði við því að ef slíkar hugmyndir fengju fram að ganga væri hætt við því að enn meiri tónlist yrði sótt ólöglega en nú er gert. Þetta sagði Jobs á sérstakri Apple Expo hátíð sem nú stendur yfir í París í Frakklandi.
Jobs sagði að nokkrir hljómplötuútgefendur vilji að Apple rukki meira fyrir þá tónlist sem hægt er að kaupa og ná í í gegnum iTunes tónlistarforritið. Í Bandaríkjunum kostar eitt lag 99 sent í iTunes, sem nemur um 62 íslenskum krónum.
Með því að sleppa því að borga fyrir framleiðslu á geisladiskum og markaðssetningu á þeim, sagði Jobs að hljómplötuútgefendur væru að græða meira en ella með því að selja tónlistina í gegnum iTunes en á geisladiski. „Ef þeir vilja hækka verðið þýðir það einfaldlega að þeir eru að verða svolítið gráðugir,“ sagði Jobs.
www.mbl.is
|