COD MUSIC - Nýtt íslenskt útgáfufélag
...........................................................................................

Tónlist.is hefur ákveðið að hasla sér völl í útgáfu á vordögum í gegnum nýtt útgáfufélag, Cod Music. Hugmyndin er að gefa tólf til fimmtán flytjendum tækifæri til að taka upp tónlist við bestu aðstæður sem fylgt verður eftir með öflugri markaðssetningu.

Í raun er hér um hefðbundna útgáfu að ræða nema að tónlistin er aðeins gefin út sem niðurhal á Netinu og í farsíma til að byrja með. Ef sýnt þykir að að ákveðnir flytjendur hafi gott efni fram að færa sem líklegt er til að ná hylli verður farið í útgáfu á geisladiskum í framhaldinu.

Þetta nýja útgáfufélag starfar í takt við þá þróun að flytjendur hafa verið að fanga athygli umheimsins eftir óhefðbundum leiðum í auknum mæli. Besta dæmið um þetta er nýlegt gengi ensku hljómsveitarinnar Arctic Monkeys en þeir hafa slegið met Bítlanna sem “hraðasta sala á frumraun” allra tíma í sölu, eða “fastest selling debut album”.

Frosti Logason, betur þekktur sem Frosti í Mínus hefur verið ráðinn verkefnastjóri og ásamt honum mun sérstakt tónlistarráð velja tilvonandi 12 – 15 flytjendur. Þeim verður síðan stefnt í hljóðver og gerðar prufuupptökur. Gert er ráð fyrir að a.m.k. 6 flytjendur verði valdir til áframhaldandi vinnslu og afraksturinn verður gefinn út á vefnum þar sem gestir og gangandi fá tækifæri til að hafa áhrif hverjir þrír verða valdir til fullbúinnar útgáfu. Þar er átt við markaðssetningu með myndböndum og tilheyrandi.

Þessi vinna mun fara fram á tímabilinu febrúar – maí 2006 og þegar upp er staðið er stefnt að því að þó nokkur fjöldi nýrra flytjenda muni hafa eyru almennings.

Einu skilyrðin fyrir þátttöku eru þau að viðkomandi flytji eigið efni. Ekki er einblínt á ákveðnar tónlistarstefnur en þó er frekar leitað eftir ungum flytjendum sem hafa eitthvað fram að færa tónlistarlega og eru líklegir til að ná hylli.

Nánari upplýsingar er að finna á www.tonlist.is og á vefsíðunni www.cod.is (verður opnuð 10.feb). Áhugasömum flytjendum er bent á að mögulegt er að senda inn efni á vefnum eða koma prufuuppökum ásamt tilheyrandi upplýsingum til Tónlist.is í Skeifunni 17, 108 Reykjavík.

Tónlist.is verður þriggja ára í apríl n.k. Á þessum fyrstu árum hefur vefurinn vaxið hratt og dafnað enda hefur verið kappkostað að fylgjast vel með og brydda upp á nýjungum. Um 300.000 stakir gestir (unique visitors) hafa sótt vefinn heim, 30.000 hafa skráð sig til að versla tónlist og um 3.000 áskrifendur greiða mánaðarlega áskriftargjald til að njóta þess besta sem íslenskt tónlistarlíf hefur upp á að bjóða.