Lay Low tilnefnd til fernra verðlauna á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2006!
...........................................................................................

Sagan ótrúlega um tónlistarkonuna Lay Low heldur áfram en hún er tilnefnd til ferna verðlauna á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2006 sem fram fara í Þjóðleikhúsinu þann 31. janúar 2007.

Lay Low hlýtur flestar tilnefningar eða 4 talsins. Platan “Please Don't Hate Me” er tilnefnd sem besta platan í flokki rokk og jaðartónlistar. Titillag plötunnar er tilnefnt sem lag ársins, Lay Low er tilnefnd sem söngkona ársins og plötuumslagið er tilnefnt sem plötuumslag ársins.

Lay Low er vel að þessum tilnefningum komin en platan hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda sem keppast við að mæra stúlkuna hana Lay Low. En platan hefur nú í 7 vikur í röð setið á topp 10 lista Tónlistans.

Lay Low er á samningi hjá COD Music, útgáfufyrirtæki D3 Miðla ehf.