|
Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í þrettánda sinn í Borgarleikhúsinu þann 31. janúar síðastliðinn. Lay Low var svo sannarlega sigurvegari kvöldsins en hún fékk þrenn verðlaun.
Lay Low var valin söngkona ársins og sló þar út Andreu Gylfadóttur og Regínu Ósk. Þá var umslag plötunnar Please Don't Hate Me valið plötuumslag ársins en það var unnið af þeim Villa Warén og Jóhönnu Lind. Og síðast en ekki síst var hún valin flytjandi ársins af notendum Vísir.is en símakosning fór fram á meðan á verðlaunaafhendingunni stóð og sló hún út ekki ómerkari tónlistarmenn en Bubba, Jeff Who?, Ragnheiði Gröndal og Magna "Rockstar". Lay Low stóð því uppi sem sigurvegari hátíðarinnar með flest verðlaun.
Við hjá D3 óskum Lay Low til hamingju með þennan frábæra árangur.
Lay Low er á samningi hjá COD Music, útgáfufyrirtæki D3 Miðla ehf.
|