John Lennon netvæddur
...........................................................................................

Allar plötur og fleira efni með John Lennon mun verða fáanlegt í stafrænu formi í desember.

Aðdáendur fyrrum bítilsins munu geta niðurhalað öllum lögunum hans í fyrsta skipti í gegnum hinar ýmsu tónlistarverslanir á netinu frá og með 5. desember.

Talandi um útgáfuna sagði Yoko Ono: “Ég er mjög glöð að tónlist John’s er nú fáanleg fyrir nýja kynslóð af tónlistarunnendum. Ný tækni er eitthvað sem hann tók alltaf opnum örmum og þetta er eitthvað sem hann myndi elska. Ég segi alltaf að hann hefði verið mjög spenntur út af öllum tækifærum í gegnum nýjar leiðir í samskiptum. Á þessum tímum held ég að það er mikilvægt að við minnumst John’s fyrir hvað hann gaf heiminum. Fyrir þá sem elska tónlist John’s og fyrir þá sem eru byrja að hlusta á hann opnar þetta nýja möguleika til að njóta tónlistar hans aftur.”

Fyrir þá sem ekki geta beðið fram í desember geta sótt safnplötuna Working Class Hero á tónlist.is