Paul McCartney og U2 setja met
...........................................................................................

Útgáfa Paul McCartney og U2 af laginu 'Sgt Pepper's Lonley Hearts Club Band' sem opnaði Live 8 tónleikana hefur slegið öll met í sölu á tónlist í gegnum niðurhal.

Lagið sem er opnunarlag plötu Bítlanna sem ber sama titil frá árinu 1967 kom aldrei út sem smáskífa. Hins vegar fór það beint á toppinn á Apple Computers niðurhalslistanum nokkrum klukkustundum eftir útgáfu lagsins.

Live 8 útgáfan komst einnig í heimsmetabók Guinnes fyrir að vera fljótasta smáskífa til að vera gefin út. Hægt var að sækja lagið á netið innan við 45 mínútur eftir að MacCartney og U2 fluttu það.

Allur ágóði af laginu rennur til Live 8 en menn hafa áhyggjur af því að sjónræningjaútgáfur dragi úr sölunni.

Sækja lagið á www.tonlist.is