Vinningshafar í afmælisleik Tónlist.is
...........................................................................................

Afmælisgjöf Tónlist.is til þjóðarinnar í tilefni 2 ára afmælis vefsetursins mæltist sérstaklega vel fyrir. Um 20.000 Íslendingar sóttu vefinn heim og allir sem skráðu sig fengu 50 laga inneignir án endurgjalds. Um 70.000 lög voru sótt alls þannig að afmælisgjöf Tónlist.is, höfunda, flytjenda og framleiðenda reyndist um 7 milljónir króna að verðmæti.

Í tengslum við afmælið var einnig happdrætti þar sem allir sem skráðu sig á Tónlist.is um afmælishelgina fóru sjálfkrafa í pott sem úr hafa verið dregnir glæsilegir vinningar, s.s. ferð á U2 tónleika í London, iPod shuffle spilari frá Apple og fríáskriftir að Tónlist.is

Á meðfylgjandi mynd má sjá vinningshafana að U2 ferðinni, þau Sigurð Rúnar Guðmundsson og Eygló Jóhönnu Guðjónsdóttir ásamt Stefáni Hjörleifssyni stofnanda Tónlist.is.