Fyrsta íslenska "videoleigan" á Netinu
...........................................................................................

Á miðnætti þann 28. maí síðastliðinn opnaði BTnet nýjan afþreyingarvef fyrir alla ADSL notendur. Um er að ræða fjölbreytta afþreyingu og meðal þess sem viðskiptavinum Btnets stendur til boða er að horfa á bíómyndir í fullri lengd og í topp gæðum án þess að þurfa að niðurhala myndunum.

Viðskiptavinurinn getur því byrjað að horfa á myndina nokkrum sekúndum eftir að myndin hefur verið valin. Þessi þjónusta er í anda svokallaðar ”Video On Demand” streymisþjónustu sem mikið hefur verið í umræðunni undanfarið. Bíóþjónustan verður einungis fyrir þá sem eru með ADSL tengingar hjá Btnet og viðskiptavinir greiða ekkert aukalega fyrir þjónustuna til að byrja með.

Á sama vef, sem hefur hlotið nafnið GAMEZONE er að finna allskyns afþreyingu og skemmtun sem er opinn fyrir alla og hefur verið sérstaklega sniðin að þörfum og óskum netverja, s.s. streymi á netútvörp og sjónvarpsútsendingar. Þar hafa einnig verið settir upp leikjaþjónar þar sem finna má stöðu spilara "live" á hverjum þjóni, ná í uppfærslur og skýrslur tengda leikjum o.s.frv. Hægt er að senda óskir um nýja leikjaþjóna og einnig spjalla um leiki og allt sem við kemur þeim á spjallborði GAMEZONE. Á vefnum er einnig fjöldi tengla á síður tengdar tölvuleikjum og afþreyingu. GAMEZONE verður í stöðugri þróun og er þetta aðeins byrjunin á þeirri skemmtun sem BTnet mun færa viðskiptavinum í framtíðinni.