Tónlist.is notað við kennslu í alþjóðaviðskiptum
...........................................................................................

Hinn virti viðskiptaháskóli, Richard Ivey School of Business í Canada, hefur lokið við svokallað “Case Study” sem skólinn hefur skrifað um Tónlist.is. Um er að ræða tvö “case”. Hið fyrra ber titilinn “Tonlist - Changing Iceland Music Landscape” og hitt er afsprengi af því og fjallar um ákvörðun frumkvöðulsins, Stefáns Hjörleifssonar að selja fyrirtækið eftir að hafa komið því í arðbæran rekstur eftir aðeins tvö ár. Þetta er mikil viðurkenning fyrir Tónlist.is því Ivey School of Business er næst stærsti framleiðandi slíkra verkefna í heiminum á eftir Harward. Saga Tónlist.is mun því fá verðskuldaða athygli þar sem verkefnið hefur fengið alþjóðlega dreifingu og mun verða kennt í viðskiptaháskólum um víða veröld.

Forsögu málsins má rekja til þess þegar hinn virti prófessor og fræðimaður, Tima Bansal kom til Íslands í fyrrasumar til að kynna sér land og þjóð með það að markmiði að finna áhugaverðan efnivið í “Case Study” um Íslenskt fyrirtæki. Bansal er áhugamanneskja um íslenska tónlist og hafði fengið pata af velgengi Tónlist.is hérlendis. Hún átti nokkra fundi með Stefáni Hjörleifssyni, fulltrúum Menntamálaráðuneytisins og fleiri aðilum. Niðurstaðan varð sú að Tónlist.is varð fyrir valinu sem þetta íslenska fyrirtæki. Hún hefur síðan setið við ásamt aðstoðarfólki í um 10 mánuði við að skrifa verkefnið. Þau hafa fylgst með breytingum hjá Tónlist.is og átt nokkra símafundi með fulltrúum fyrirtækisins og öðrum Íslendingum sem að málinu koma. ”Casið” er nú tilbúið og verður prófað til kennsku við MBA námið í Richard Ivey og BA námið í University of Western Ontario, Canada. Að því loknu verður það boðið öðrum háskólum til kaups.

Tónlist.is varð eitt fyrsta vefsvæðið í heiminum til að bjóða stafræna tónlistarþjónustu 2003 og opnaði í sömu viku og iTunes Music Store. Vefurinn hlaut strax góðar viðtökur hjá almenningi og fagfólki og hefur hlotið nokkrar viðurkenningar. Þar ber helst að nefna Hvatningarverðlaun Samtóns fyrir frumkvöðlastarf í þágu íslenskrar tónlistar og Íslensku vefverðlaunin 2003 sem Besti íslenski vefurinn. Þá var vefurinn sérstaklega tekinn út á helstu ráðstefnu tónlistargeirans sem fjallar um stafræna tónlist, Midemnet í Cannes fyrr á árinu. Þar var fjallað um þau 240 vefsvæði sem til eru í heiminum og Tónlist var einn vefja tekinn sérstakega út sem gott dæmi um staðbundið vefsvæði með mikið magn tónlistar og gott viðmót.