|
Þann 19. maí síðastliðinn opnaði formlega ný útgáfa af vefnum Tónlist.is. Útlit, virkni og þjónusta við notendur er gjörbreytt og tekið hefur verið mið af því allra nýjasta sem er að gerast á þessu sviði í dag. Í því sambandi má nefna öflugra og einfaldara viðmót fyrir notendur, iTunes samhæfni, stórbætta leitarmöguleika o.m.fl.
Meðal breytinga á vefnum má nefna að vefurinn verður að fullu samhæfður við iPod sem og aðra spilara, styður alla vafra og höfundarréttarvörn verður tekin af lögum sem seld eru. Með þessu viljum við bregðast við óskum neytenda en nú verður hægt að sækja sér lög á tónlist.is og valið á hvaða sniði þau verði afgreidd, þ.e. hvort sem það er á mp3, aac eða wma. Öll tónlist verður seld með 192 kílóbita þjöppun.
Tónlist.is átti fjögurra ára afmæli um síðustu mánaðarmót og er breytingin löngu orðin tímabær. Breytingarnar felast þó ekki aðeins í breyttu útliti og aðgengi fyrir aðra vafra en Internet Explorer, heldur hefur höfundarréttavörn, DRM, verið tekin af lögunum sem seld eru, samanber geisladiskum sem fást í verslunum og okkur þykir ástæðulaust að gera viðskiptavinum okkar erfiðara fyrir en almennum plötukaupendum. Almennt verð á lögum verður áfram 99 kr. en verðlagningu hefur einnig verið breytt í þá veru að útgefendum gefst færi á selja lög á öðru verði kjósi þeir svo. Ætla má að nýleg tónlist verði á 99 kr., eldri lög á 79 kr. Og algengt verð á nýjum lögum verði 149 kr.
Yfirlýsing frá Tónlist.is
Yfirlýsing frá STEF
Yfirlýsing frá Senu
|