Nokia leggur aukna áherslu á myndir og tónlist
...........................................................................................
Stærsti farsímaframleiðandi heims, Nokia, hefur undanfarið endurheimt að nokkru leyti tapaða markaðshlutdeild þökk sé ekki síst gífurlega vinsælum snjallsímum sem fyrirtækið hefur sett á markaðinn, og viðurkenna þeir hjá Nokia að símtöl verði sífellt minni þáttur í notkun farsíma.

„Við erum hættir að kalla þetta farsíma, við köllum þetta tölvu sem hægt er að nota til að hringja úr,“ sagði Anssi Vanjoki, yfirmaður margmiðlunardeildar Nokia, um nýja N90 símann sem m.a. er búinn fyrsta flokks Zeiss-linsu á 2 megapixla myndavél.

Nokia var stofnað fyrir sextíu árum og framleiddi þá gúmmístígvél. Á síðari hluta tíunda áratugarins var fyrirtækið orðið að stærsta farsímaframleiðanda í heimi. Yfir 80% af tekjum fyrirtækisins kemur frá farsímum og hefur það sett sér það markmið að ná 40% heimsmarkaðarins. Það markmið náðist næstum því 2002, þegar 38% seldra farsíma í heiminum voru Nokia.

En síðla árs 2003 fór Nokia að missa markaðshlutdeild til keppinautanna, Motorola, Samsung, Siemens og Sony Ericsson, sem buðu upp á vinsælar símagerðir. Neil Mawston, markaðsgreiningarfulltrúi í London, segir að það hafi einkum verið þrennt sem varð Nokia fjötur um fót, litir, myndavélar og samlokusímar.

„Það var þetta þrennt sem mesti vöxturinn var í 2003 og fram á 2004. [Nokia] var talsvert aftarlega á merinni á þessum sviðum,“ segir Mawston. „Nokia varð einnig fórnarlamb eigin velgengni. Þegar allir eiga Nokia-síma kemur að því að það er ekki mjög svalt að eiga Nokia.“

Markaðshlutdeild Nokia skrapp saman um 29% í byrjun árs 2004, en þá greip fyrirtækið til þess ráðs að skipta um stjórnendur, minnka markaðsdeildir og stofna nýjar deildir á borð við margmiðlunardeildina.

Nú er áherslan lögð á snjallsímana, sem fyrst voru kynntir árið 2000, en með þeim er hægt að komast á Netið og taka myndir sem hægt er að senda í aðra síma. Tveim árum síðar kynnti fyrirtækið nýjan síma með vídeótökuvél, RealOne-spilara og stafræna aðdráttarlinsu. Í síðasta mánuði höfðu selst tíu milljónir slíkra síma.

Nokia ætlar ekki að missa af lestinni aftur og einbeitir sér nú í auknum mæli að tónlistarniðurhali, gagnaritstýringu og kvikmyndamöguleikum. Nýja N-serían, sem kom í verslanir í síðasta mánuði, er búin sjálfvirkri skerpustillingu (autofocus), snúningsskjá, myndsíma, stafrænni aðdráttarlinsu á myndavél, innbyggðu flassi og sérstakri stillingu fyrir nærmyndir.

N-91 síminn, sem kemur á markað í nóvember, er með 4 gígabita hörðum diski sem Nokia segir að geti vistað allt að 3.000 lög, og er markmiðið að síminn verði í samkeppni við iPod.

Á öðrum ársfjórðungi seldi Noka 61 milljón síma, en á sama fjórðungi síðasta árs nam salan 45,5 milljónum. Sala í Kína jókst um 76%. Heimsmarkaðshlutdeildin óx í 31,5%, úr 29,6%. Hlutdeildin í markaði fyrir snjallsíma óx úr 33% í 55% á sama tíma.


mbl.is