Microsoft gerir aðför að ólöglegum hugbúnaði
...........................................................................................
Microsoft hefur nú ákveðið að hætta að bjóða upp á uppfærslur fyrir þá sem eru með ólöglegar útgáfur af Windows XP. Fyrirtækið hefur skipt yfir í svokallað Windows Genuine Advantage Programme sem er hluti af herferð þeirra gegn ólöglegum hugbúnaði.

Notendur verða nú að ganga í WGA staðfestingarkerfið ef þeir vilja fá uppfærlsur á hugbúnaði frá Microsoft Download Centre eða frá Microsoft Update. Microsoft segja hinsvegar að þeir munu úthluta öryggisuppfærslum fyrir ólöglegar útgáfur í gegnum sjálfvirku uppfærlsuna í Windows.

Til að skrá sig í WGA, þurfa notendur aðeins að heimasækja Microsoft Download Centre eða Windows Update. Þar verða notendur hvattir til að sækja ActiveX stýribúnað sem athugar áreiðanleika Windows húgbúnaðarins og ef stýrikerfið reynist vera löglegt verður settur niðurhalslykill í tölvuna til framtíðarstaðfestingar.

Microsoft segir að þetta ferli sé ekki til að safna saman upplýsingum eða til að hafa samband við notendur.

Í janúar 2005 gerði Microsoft prófun á þessu, 40 milljón manns skráðu sig og voru flest þeirra að athuga hvort hugbúnaður þeirra væri löglegur. Fyrirtækið segir einnig að þeir sem leggja fram skýrslur um ólöglegar útgáfur fá löglegar útgáfur ókeypis ef sá aðili getur lagt fram sönnun þess að hann hafi keypt hugbúnaðinn.