Stórhertar aðgerðir gegn ólöglegu niðurhali
...........................................................................................

Tónlistariðnaðurinn hefur nú greint frá því að hann ætli í stórtækar aðgerðir gegn ólöglegu niðurhali á netinu. Í aðgerðunum verða yfir 2200 einstaklingar lögsóttir í Evrópu, Asíu og í fyrsta sinn í Suður-Ameríku. Fimm ný lönd hafa bæst í hóp þeirra sem ætla beita sektum til þess að sporna við niðurhali.

Skráardeilendur í Svíþjóð, Sviss, Argentínu, Hong Kong og Singapore eiga í fyrsta sinn hættu á því að verða kærðir og gætu þurft að borga sektir í alþjóðlegri herferð sem hefur nú þegar orðið til þess að þúsundir einstaklinga, aðallega karlmenn milli 20-30 ára, hafa þurft að greiða 3000 dollara fyrir að senda frá sér skrár með höfundarétti á svokölluð Peer-to-Peer netkerfi (P2P).

Þetta er fjórða stóra herferðin síðan í mars 2004 en alls hafa 3.900 manns verið sektaðir í 16 löndum utan Bandaríkjanna sem notað hafa ólögleg skráarskiptiforrit eins og FastTrack (Kazaa), Gnutella (BearShare), eDonkey, DirectConnect, BitTorrent, WinMX og SoulSeek.

Aðgerðirnar í Svíþjóð, Sviss, Argentínu, Hong Kong og Singapore sameinast Austurríki, Danmörku, Frakklandi, Finnlandi, Þýskalandi, Íslandi, Írlandi, Ítalíu, Japan, Hollandi, Bretlandi og Ameríku en í heildina eru það 17 lönd sem tengjast málaferlunum.