PSP kemur 1. september
...........................................................................................

Sony Computer Entertainment gefur út hina vinsælu PSP leikjatölvu hér á landi, 1.september næstkomandi.

Eftir gríðarlega velgengni í Japan og Bandaríkjunum, mun PSP verða sett í sölu í Evrópu og þar á meðal Íslandi, 1.september næstkomandi. Tölvan verður fáanleg í sérstökum pakka sem mun innihalda fjölda aukahluta fyirr vélina, þar á meðal hulstur til að verja vélina, 32MB minniskort, rafhlöðu, heyrnatól, straumbreyti, ól til að festa vélina við úlnliðinn, klút og disk sem inniheldur myndbönd, sýnishorn úr leikjum og tónlist sem væntanleg eru fyrir vélina.

Einnig mun eintak af Spider-Man 2, á UMD disk verða gefins fyrir fyrstu viðskiptavini, sem að skrá vélina og panta Spider-Man 2 diskinn á vefsíðunni www.yourpsp.com, sem að er sérstakur vefur sem SCEE hefur sett upp fyrir PSP.

PSP tölvan er með 4.3 tommu 16:9 widwscreen TFT LCD skjá sem birtir allan litaskalan (16,77 milljón lita) í upplausninni 480 x 272. PSP er einnig með innbyggða stereo hátalara, tengi fyrir heyrnatól og fjölda tenginga á borð við USB 2.0 og 802.11b þráðlaust LAN, þar sem leikmenn get tengst internetinu og spilað þar þráðlaust. Allt að 16 PSP vélar í sama nágrenni geta svo tengst hvor annarri í Ad Hoc möguleikanum, þar sem leikmenn geta keppt hvor við annan. Þar að auki gerir þráðlausa nettengingin leikmönnum kleift að hala niður forritum og öðrum gögnum.

PSP notar nýja gerð diska sem heita Universal Media Disc (UMD). Þessi miðill er næsta kynslóð í litlum diskum, og þó að diskurinn sé aðeins 60 mm í þvermál, getur UMD innihaldið 1.8GB af stafrænum gögnum – meira en þrefalt það magn sem rúmast á venjulegum CD disk. Gríðarlegt úrval afþreyingar er hægt að dreifa á UMD diskunum og má þar nefna hágæða þrívíddar leiki, tónlist, kvikmyndir, myndbönd og fleira.

“PSP er bylting í afþreyingu fyrir þá notendur sem eru mikið á ferðinni, og gefur hún notendum það frelsi að spila fullkomna þrívíddar leiki, horfa á kvikmyndir, hlusta á tónlist og tengjast þráðlaust hvar og hvenær sem er,” segir David Reeves, Forstjóri SCEE. “Nútíma neytendur krefjast þess að geta nálgast afþreyingu sína hvar sem er, án þess að fórna gæðum fyrir. Með meira en 100 PSP leiki í þróun um allan heim, og möguleikinn til að hala niður á tölvuna og hlusta á tónlist og einnig sá möguleiki að geta horft á kvikmyndir í ótrúlegum gæðum, gerir PSP fólki kleift að stjórna sinni afþreyingu á einum stað í einu tæki.”

PSP verður gefin út á Íslandi 1. september og verður dreift af Senu.

Helstu tæknilegar upplýsingar um PSP