Yfirlýsing frá Senu
...........................................................................................

Af gefnu tilefni vegna umræðna í fjölmiðlum um meintar vanefndir tónlistarveitunnar tonlist.is gagnvart flytjendum, útgefendum og höfundum vill Sena taka eftirfarandi fram:

Tonlist.is hefur að fullu staðið við allar skuldbindingar gagnvart Senu samkvæmt samningum þar að lútandi. Frá opnun tonlist.is hefur Sena þegið, fyrir sína hönd og listamanna á útgáfusamningum hjá Senu, greiðslur frá tonlist.is vegna sölu á stökum lögum, sölu áskriftar og vegna sölu hringitóna fyrir farsíma.

Vegna gríðarlegs umfangs uppgjara til listamanna vegna sölu á tonlist.is hefur Sena ekki enn gert þessar tekjur upp gagnvart sínum listamönnum. Hefðbundin uppgjör Senu til listamanna byggjast á seldum eintökum geislaplatna og er þar um að ræða um það bil 650 mismunandi titla á ári hverju. Slíku uppgjöri vegna seinni hluta ársins 2006 er nú nýlokið og greiddi Sena íslenskum flytjendum og höfundum um það bil 50 milljónir króna vegna sölu geislaplatna á árinu 2006.

Uppgjör vegna sölu tónlistar á tonlist.is byggist hins vegar á stökum lögum og því er umfang þess uppgjörs margfalt meira en hins hefðbundna eða í námunda við 15.000 stök lög. Vegna þessa og þeirrar staðreyndar að um er að ræða afskaplega lágar fjárhæðir fyrir meginþorra laganna hefur Sena kosið að bíða með þessi uppgjör og láta þau fremur safnast upp í hærri upphæðir til hvers og eins, enda er Senu það heimilt samkvæmt samningum við listamenn að fresta uppgjörum milli tímabila ef tiltekin lágmarkssala næst ekki.

Þessar greiðslur skila sér þó að sjálfsögðu til flytjenda og vinna við slík uppgjör mun hefjast á næstu vikum. Þau verða í framtíðinni gerð samhliða hefðbundnum uppgjörum en Sena hefur nýverið fjárfest í þóknanahugbúnaði sem gerir öll uppgjör til flytjenda nánast sjálfvirk en þau hafa hingað til verið unnin upp á gamla mátann; "í höndunum".

Fh. Senu
Eiður Arnarsson
Forstöðumaður tónlistardeildar