D3 tekur við rekstri efnisveitu Símans ...
...........................................................................................

D3 hefur tekið við umsjón á afþreyingarhluta fyrir farsíma á vef Símans, sem nefnist "Skemmtun". Skemmtun er vefhluti á Síminn.is, með margskonar afþreyingu í farsíma, sjá hér. D3 í nafni Tónlist.is mun sjá um forritun, viðhald og uppfærslur á Skemmtun Símans. Markmiðið með þessu samstarfi er að auka þjónustu fyrir viðskiptavini Símans fyrir farsíma.

„En og aftur sýnir D3 styrk sinn í dreifingu á afþreyingu í gegnum stafræna miðla. Er það markmið okkar að styrkja "Skemmtun" Símans enn frekar og gera hana skemmtilegri" segir Engilbert framkvæmdastjóri D3.