D3 með tvær tilnefningar á Íslensku vefverðlaununum
...........................................................................................

Tónlist.is og Vísir.is sem eru í eigu D3 eru tilnefndir til Íslensku vefverðlaunana.

Vefirnir eru tilnefndir í flokknum Besti afþreyingarvefurinn en einnig er Leikjanet.is tilnefndur í þeim flokki en sá vefur er einn af fjölmörgum samstarfsvefum D3. Íslensku vefverðlaunin eru árlega veitt vefum sem taldir eru skara fram úr á sínu sviði. Verðlaunin hafa undanfarin ár verið haldin í samstarfi Vefsýnar og ÍMARK en nú verður sú breyting á að framkvæmd verðlaunanna verður í höndum nýstofnaðra Samtaka Vefiðnaðarins, í samstarfi við ÍMARK. Þetta er í sjötta skipti sem verðlaunin verða veitt

Söfnun tilnefninga til Íslensku vefverðlaunanna fór fram frá 15. desember til 5. janúar en verðlaunin verða afhent af forsætisráðherra við hátíðlega athöfn í Iðnó 18. janúar næstkomandi kl. 17:00.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Samtökum vefiðnarins...
www.svef.is