|
Í Fréttablaðinu 21. maí s.l. er fjallað um tölvupósta sem sagt er að hafi gengið hafa milli manna. Þar eru tónlistarmenn af yngri kynslóðinni sagðir ósáttir við stjörnugjöf á nýjum vef Tónlist.is.
Stjörnugjöfinni er ætlað að auka gagnvirkni milli vefjarins og notenda. Þannig gefst öllum notendum kostur á að gefa plötum einkunnir og meðaltal stjörnugjafarinnar er síðan birt. Þegar vefurinn var settur í loftið fengu allar plötur sjálfvirkt þrjár stjörnur og síðan var það stjörnugjöf notenda sem réð því hvort plötur færðust upp eða niður í stjörnugjöf. Við sáum strax að það væri ekki rétt aðferðarfræði þar sem Tónlist.is var með því móti að setja sig í ákveðið dómarasæti. Það var ekki ætlunun og því hefur þetta verið leiðrétt. Nú er það því aðeins stjörnugjöf notenda sem ræður og nýjar plötur verða án stjarna þar til einhver notandi hefur gefið viðkomandi plötu stjörnur.
Á öðrum stað er því haldið fram að tónlistarmenn hafi ekki fengið krónu fyrir sölu á tónlist á vefsíðunni. Þeirri fullyrðingu er alfarið hafnað. Tónlist.is er með samninga við útgefendur og STEF varðandi sölu og uppgjör á seldri og streymdri tónlist. Tónlist.is hefur frá upphafi sent uppgjör og gert upp við þessa aðila sem hafa umboð fyrir tónlistarmenn og skiptir sér ekki af því hvernig þeir koma greiðslum til sinna umbjóðenda. Ef þessi fullyrðing Fréttablaðsins er rétt er alfarið vísað á útgefendur og STEF í þessu samhengi.
Tónlist.is harmar þennan fréttaflutning og telur hann óábyrgan. Tónlist.is var upphaflega sett upp til höfuðs þeim vefsvæðum sem dreifa tónlist á ólögmætan hátt og hefur alla tíð starfað í sátt við hagsmunaaðila. Tónlist.is bendir jafnframt þeim tónlistarmönnum sem telja sig hlunnfarna að hafa samband beint við sína útgefendur og höfunda að hafa samband við STEF.
Virðingarfyllst,
Stefán Hjörleifsson
Framkvæmdastjóri og stofnandi Tónlist.is.
|