Tónlist.is opnar myndveitu (VOD) með tónlist
...........................................................................................

  • Yfir 1.000 myndbönd og tónleikar
  • Sálin í Köben, aðeins á Tónlist.is
  • Fyrsta VOD þjónustan með tónlist hérlendis



  • Tónlist.is tekur í gagnið nýja þjónustu fyrir áskrifendur á morgun (þriðjudaginn 15. nóvember) sem gerir fólki kleift að horfa á myndbönd og tónleika með því að búa til eigin dagskrá, þegar því hentar. Um er að ræða svokallaða myndveitu (Video On Demand Service) og hægt er að nálgast flest nýjustu myndböndin, íslensk og erlend, auk ógrynni af eldra efni. Þjónustan er ókeypis fyrir alla í fjórtán daga frá en að því loknu fellur hún undir mánaðarlegt áskriftargjald sem aukinheldur veitir ótakmarkaðan aðgang að um 50.000 íslenskum lögum

    Meðal þess sem boðið er uppá í þjónustunni er upptaka af eftirminnilegum tónleikum Sálarinnar í Kaupmannahöfn 5. nóvember s.l. Markmiðið með þjónustunni auk þess að bjóða uppá á myndbönd er að veita aðgengi að efni sem hvergi sést annarsstaðar og má nefna ”live” upptökur með Paul McCartney, Coldplay og fjölmörgun tónleikum innlendra og erlendra listamanna.

    Notendaviðmótið er sérstaklega aðgengilegt og fletta má upp listamönnum eða lögum á nálgast ítarefni um efnið. Notendur geta búið til lagalista fyrirfram og meðan á spilun stendur þannig að gera má sér í hugarlund að leysa mætti tónlist fyrir stór og smá samkvæmi á auðveldan máta svo dæmi sé tekið af notkunarmöguleikum. Sjónvarpið og tölvan er að renna saman í eitt og því má auðveldlega spila þessa dagskrá hvort heldur sem er í sjónvarpi heimilisins, heimilistölvunni eða þráðlausri fartölvu. Notendur geta valið um mismunandi gæði eftir tengingum en mestu gæðin gefa DVD diskaum ekkert eftir.

    Myndveita Tónlist.is er liður í þeirri stefnu Tónlist.is að vera leiðandi í nýjum leiðum til að njóta tónlistar enda var Tónlist.is fyrst til að selja tónlist á Netinu, bjóða uppá áskriftarþjónustu á tónlist, selja rauntóna með íslenskri tónlist í farsíma og bjóða upp á beinar tónleikaútsendingar. Mynd og hljóð er að renna saman í hugum ungs fólks og oftar en ekki er talað um að horfa á tónlist og því hlýtur þessi viðbót að teljast kærkomin.

    Tónlist.is hefur vaxið jafnt og þétt frá opnun vefsins í lok apríl 2003 og fyrri helming þessa árs nam sala tónlistar á Tónlist.is um 7% af heildarsölu tónlistar á Íslandi. Það er nokkuð hærra en erlendis en á heimsvísu er talið að sala á öllum netsvæðum heimsins sé nú um 6% af heildarsölu tónlistar. Gert er ráð fyrir gríðarlegum vexti á þessu sviði enda hefur salan þrefaldast milli ára.

    Sjá nánar hér.