Enski boltinn er á Vísir.is
...........................................................................................

Vísir.is hefur opnað nýjan vefhluta sem er tileinkaður enska boltanum. Mikið er um nýjungar á vefnum og til að mynda gefst lesendum Vísis kostur á því að sjá öll mörkin í ensku úrvalsdeildinni vefnum. Þessi þjónusta kostar ekki neitt og verður aðgengileg á hverju sunnudagskvöldi þegar umferð er um helgi og á miðnætti á leikdag þegar leikið er á virkum dögum.

Hægt verður að skoða tveggja mínútuna brot úr hverjum einasta leik umferðarinnar, fimm mínútna samantekt úr leikjum umferðarinnar, mörk umferðarinnar, leikmann umferðarinnar og markvörslur umferðarinnar.

Auk þess munu allir Íslendingarnir, sem spila í ensku úrvalsdeildinni, blogga og sérfræðingar Sýnar 2 verða með pistla í hverri viku. Vefurinn er unninn í samstarfi við Sýn 2. Kynntu þér vefinn á www.visir.is/enski