Metaðsókn að Vísi
...........................................................................................

Frétta- og afþreyingavefurinn visir.is er í stöðugri sókn og hefur aldrei verið stærri. Visir.is er vinsælasti vefur landsins það sem af er marsmánaðar samkvæmt vefmælingu Samræmdrar vefmælingar (Modernus) en síðdegis þann 14. mars, höfðu 365.463 sótt vefinn frá mánaðarmótum. Í síðustu viku fékk visir.is 247.151 heimsóknir sem er metaðsókn að vefnum á einni viku.

Langstærsta bloggsamfélag landsins
Bloggsamfélagið á visir.is er það langstærsta á Íslandi og í stöðugum vexti. Í síðustu viku var sett aðsóknarmet þegar gestir á bloggsvæði visir.is voru 181.937 talsins. Nýir bloggarar bætast við í hverri viku.

Aukið áhorf á sjónvarpsefni á Vísi

Notendur Vísis nota sér í auknum mæli Vefmiðla Vísis - þar sem m.a. er að finna rafræna útgáfu af Fréttablaðinu og sjónvarpsefni frá Stöð 2, Sýn og Sirkus á VefTV. Greinilegt er að notendur kunna að meta það að geta horft á sjónvarpsefni þegar þeim hentar. Sem dæmi má nefna að 10% áhorfenda sjónvarpsþáttarins Kompáss sáu þáttinn á VefTV Vísis, skv. nýlegri mælinu sem var gerð fyrir Stöð2.

Öflug fréttaþjónusta
Auknar vinsældir Vísis haldast í hendur við stóreflingu fréttaþjónustu á vefnum undanfarna mánuði. Fjöldi fréttamanna starfar að fréttaöflun eingöngu fyrir visir.is, en að auki nýtur vefurinn góðs af fréttaflutningi í Fréttablaðinu og á Stöð 2.

Frekari upplýsingar veitir Þórir Guðmundsson ritstjóri Vísis í síma 6969079.